Glæsilegt parhús á tveim hæðum, eignin er með sér þakverönd, sér garð og sameigninlegan garð með sundlaug í lokuðum kjarna.
Björt og einstaklega glæsileg íbúð, á tveimur hæðum, staðsett á besta stað í Quesada á Spáni. Aðeins 30 mínútna akstur frá Alicante flugvelli. Sérlega glæsileg íbúð sem skiptist tvö svefnherbergi á efri hæð og tvö baðherbergi. Eldhús, svefnsófi í stofu á fyrstu hæð og eitt baðherbergi, svefnrými er fyrir allt að átta gesti. Útgengt er frá íbúð á sjarmerandi verönd og er fátt eitt betra en að byrja daginn á góðum kaffibolla á veröndinni. Íbúðinni fylgir glæsilegur garður með sólbaðsaðstöðu og stórri sundlaug sem hönnuð er fyrir alla aldurshópa.
Íbúðarhúsnæði Helgafells í Quesada á Hvítu ströndinni á Spáni er aðlaðandi og í snyrtilegu umhverfi. Quesada sem tilheyrir Valencia á Spáni er þekkt fyrir rólegheit og notalegt loftslag og þá helst fullkomið veðurfar þar sem sólin skín í takt við notalega hafgolu. Í hverfinu eru stutt í alla þjónustu og samgöngur í kring eru auðveldar og öruggar
Kostir staðsetningar íbúðar:
5 mínútna göngufjarlægð í matvöruverslanirnar Aldi, Lidl, Consum og Masymas.
5 mínútna göngufjarlægð frá nokkrum veitingastöðum, kaffihúsum og börum.
5 mínútna göngufjarlægð frá bar þar sem fótboltastemningin ræður ríkjum.
10 mínútna göngufjarlægð frá aðalverslunargötunni (Laugavegur) þar sem þó nokkuð af verslunum og veitingastöðum er að finna.
15 mínútna akstur er á næstu baðströnd.
20 mínútna akstur í glæsilega verslunarmiðstöð LA Zenia Boulevard sem að hluta til er utandyra.
30 mínútna akstur til iðandi stórborga á borð við Alicante, Elche og Murcia að ógleymdum sjávarbænum Torrevieja.
30 mínútna akstur í hinn dásamlega Rio Safari Elche dýragarð.
Háklassa golfvellir eru nánasta umhverfi.
Nálægð við þekktar og skemmtilegar spænskar hjólreiðaleiðir.
Í nálægð við rómantísk sveitaþorp þar sem Spænsk menning ræður ríkjum.
Upplýsingar
- Gestir: 6
- Þægindi: Borðstofa, Eldhús, Frítt bílastæði, Frítt Internet / WIFI, Loftkæling, Nauðsynjar, Reyklaust, Sjónvarp, Svalir, Upphitun, Útisundlaug, Verönd, Þurrkari, Þvottavél
- Útsýni: Útisundlaug, Þakverönd
- Stærð: 100m²
- Svefnfyrirkomulag: 1 hjónarúm, 2 einbreið rúm, sófi
- Svæði: Alicante, Dona Pepa, Torrevieja
- Baðherbergi: 3
- Herbergi: 2
Ódýrasta verð frá: €190 per nótt (+trygging & gjöld)